Meira um lífeyri
Meira um séreign
Meira um lán
Meira
Sjóðfélagalán:
Fastir vextir: 4,15%
Breytilegir vextir: 3,75%
Fréttir | Fréttamiðlun
Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða mótmælir harðlega hvers konar nýjum álögum á starfsemi lífeyrissjóða, hvort sem þær eru í formi hækkunar á gjaldtöku eða með nýjum sköttum.
Stjórnvöld ætla að leggja á sérstakan 0,0814% eignarskatt á heildareignir samtryggingahluta lífeyrissjóða vegna áranna 2012 og 2013. Jafnframt ætla stjórnvöld að lækka frádráttarbært iðgjald til viðbótarlífeyrissparnaðar úr 4% í 2% næstu þrjú árin.
Þá hefur undanfarna daga verið greint frá áformum um verulega hækkun gjaldtöku til að standa undir rekstri Fjármálaeftirlitsins og embættis umboðsmanns skuldara á árinu 2012. Einnig voru uppi áform um sérstakan 10,5% fjársýsluskatt á starfsemi lífeyrissjóða, sem reyndar hefur vegna mikillar andstöðu nú verið horfið frá.
Gangi þessi áform stjórnvalda eftir er ljóst að þau munu auka álögur og kostnað lífeyrissjóðanna og hafa þau áhrif að lífeyrisgreiðslur munu lækka til sjóðfélaga, sem eru eigendur sjóðanna.
Reykjavík, 13. desember 2011
Nánari upplýsingar veitir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri LL sími 563-6450 netfang thorey@ll.is.
Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is