Venjulegt letur Stórt letur Mjög stórt letur




22. maí 2013
Upplýsingar um lífeyrismál
Hlutverk lífeyrissjóða
Þriggja stoða lífeyriskerfi
Ellilífeyrir
Makalífeyrir
Barnalífeyrir
Skipting ellilífeyrisréttinda milli hjóna
Réttindi í mörgum lífeyrissjóðum
Skattlagning iðgjalda og lífeyris
Viðbótarlífeyrissparnaður
Mismunandi réttindakerfi
Landssamtök lífeyrissjóða
Gott að vita

Hlutverk lífeyrissjóða er að tryggja sjóðfélögum sínum ellilífeyri til æviloka og veita þeim tryggingu sem ver þá og fjölskyldur þeirra fyrir tekjumissi af völdum orkutaps og andláts.

Ellilífeyrir til æviloka
Lífeyrissjóðirnir greiða sjóðfélögum ellilífeyri til æviloka í hlutfalli við greidd iðgjöld á starfsævinni og gerir þeim kleift að njóta fjárhagslegs öryggis á efri árum.

Trygging vegna orkutaps
Verði sjóðfélagi fyrir tekjumissi vegna slyss eða sjúkdóms, sem leiðir til orkutaps, greiðir lífeyrissjóðurinn honum örorkulífeyri. Auk áunninna réttinda er líka mögulegt að sjóðfélaginn fái greiddan örorkulífeyri miðað við framreikning, en það þýðir að hann fær réttindi eins og hann hefði greitt iðgjald af núverandi launum fram að ellilífeyrisaldri. Barnalífeyrir er einnig greiddur börnum örorkulífeyrisþega.

Trygging vegna andláts
Lífeyrissjóðirnir greiða maka- og barnalífeyri til þess að milda fjárhagslegt áfall fjölskyldunnar þegar sjóðfélagi fellur frá. Makalífeyrir flestra lífeyrissjóða byggir á framreikningi réttinda við ákveðin skilyrði.

Starfsemi lífeyrissjóðs skal lúta að móttöku, varðveislu og ávöxtun iðgjalda og greiðslu lífeyris. Lífeyrissjóður skal ekki hafa með höndum aðra starfsemi en þá sem nauðsynleg er til að ná fram þessum markmiðum.

Tekjuháður lífeyrir
Greiði sjóðfélagi iðgjald af tvöfalt hærri launum en samstarfsmaður hans, fær sjóðfélaginn tvöfalt hærri lífeyri. Almenna reglan er því sú að lífeyririnn er tekjuháður. Öll iðgjöld sem berast lífeyrissjóðnum nýtast til greiðslu lífeyris.

Verðtrygging lífeyris
Lífeyrir flestra lífeyrissjóða er verðtryggður og breytist mánaðarlega til samræmis við breytingar á vísitölu neysluverðs. Hjá sumum sjóðum reiknast lífeyrir sem hlutfall af launum.

Lán lífeyrissjóða til sjóðfélaga
Flestir lífeyrissjóðir veita sjóðfélögum sínum lán til fjárfestinga. Lánin eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs. Lántökuskilyrði, fjárhæðir, lánstími og vextir eru hins vegar nokkuð mismunandi milli sjóða og því ber sjóðfélögum að kynna sér lánareglur viðkomandi sjóðs.

Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is

Admin Login LS Veflausnir Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright (c) 2013 Söfnunarsjóður Lífeyrisréttinda