Skilyrði makalífeyris Makalífeyrir greiðist til eftirlifandi maka við andlát sjóðfélaga. Maki telst sá eða sú sem við andlátið var í hjúskap með sjóðfélaga, staðfestri samvist eða óvígðri sambúð.
Upphæð makalífeyris – framreikningur Upphæð makalífeyris fer eftir þeim réttindum sem sjóðfélagi hafði áunnið sér fyrir andlátið, auk þeirra réttinda sem hann hefði áunnið sér hjá sjóðnum, ef hann hefði greitt til 65 eða 67 ára aldurs. Sjóðfélagi skal hafa greitt til lífeyrissjóðs a.m.k. 24 mánuði á undanförnum 36 mánuðum fyrir andlátið til þess að réttur til framreiknings geti myndast. Makalífeyrir er einnig greiddur ef sjóðfélaginn naut elli- eða örorkulífeyris við andlátið.
Lengd makalífeyris Fullur makalífeyrir skal aldrei greiddur skemur en í tvö ár. Hafi makinn barn sem er yngra en 18 ára á framfæri sínu, skal fullur makalífeyrir greiddur þar til barnið hefur náð 18 ára aldri. Hjá sumum sjóðum er aldursmark yngsta barnsins hærra til greiðslu makalífeyris. Ef makinn er öryrki skal fullur makalífeyrir greiddur allt að 70 ára aldri makans. Hjá nokkrum lífeyrissjóðum er fullur eða skertur makalífeyrir greiddur til æviloka. Hann fellur þó niður ef makinn gengur í hjónaband á ný eða stofnar til sambúðar eða staðfestrar samvistar.
Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is