Mat á réttindum og flutningur iðgjalda Margir eiga lífeyrisréttindi í fleiri en einum sjóði. Því vakna oft spurningar hvort sjóðfélagar þurfi að halda sérstaklega utan um þessi réttindi og/eða hvort líkur séu á því að þau geti glatast. Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af þessu, en þó er góð regla að geyma hjá sér upplýsingar um iðgjaldagreiðslur, ekki síst öll yfirlit sem menn fá send frá lífeyrissjóðum. Til að halda utan um lífeyrisréttindi í lífeyrissjóðunum og koma í veg fyrir að réttindi glatist, er annars vegar haldin svokölluð lífeyrisskrá og hins vegar er í gildi sérstakt samkomulag um samskipti lífeyrissjóða.
Lífeyrisskrá Gerð hefur verið skrá yfir alla þá sem einhvern tímann hafa greitt til lífeyrissjóða. Í þeirri skrá kemur fram til hvaða lífeyrissjóða hver einstaklingur hefur greitt. Lífeyrissjóðir veita sjóðfélögum upplýsingar úr skránni.
Samkomulag um samskipti lífeyrissjóða Flestir lífeyrissjóðir landsins eru aðilar að þessu samkomulagi. Helstu atriði samkomulagsins eru þau að lífeyrissjóðir veita upplýsingar um iðgjöld hver hjá öðrum til að koma í veg fyrir réttindatap, sérstaklega varðandi framreikning réttinda. Einnig kveður samkomulagið á um flutning iðgjalda milli sjóða þegar kemur að lífeyristöku og skal þá flytja iðgjöld milli sjóða, ef þau eru óveruleg. Nægjanlegt er fyrir sjóðfélaga að sækja um lífeyri hjá einum sjóði og þá yfirleitt þeim sjóði sem síðast var greitt til. Sá sjóður hefur aðgang að lífeyrisskránni og sér um að senda umsóknina áfram til annarra sjóða. Þá starfar sérstök úrskurðar- og umsagnarnefnd sem fjallar um álitamál sem upp kunna að koma vegna réttinda í mörgum sjóðum.
Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is