Venjulegt letur Stórt letur Mjög stórt letur




19. maí 2012
Eftirlit sjóðfélaga

Eftirlit sjóðfélaga

Mikilvægt er að sjóðfélagar fylgist vel með iðgjaldaskilum. Sjóðurinn sendir út yfirlit tvisvar á ári. Á yfirlitunum koma fram iðgjaldaskil og réttindi sjóðfélaga. Mjög mikilvægt er að bera iðgjaldaskilin saman við launaseðla til þess að sannreyna að iðgjaldaskil séu í samræmi við afdregin iðgjöld. Berist ekki yfirlit frá sjóðnum getur það þýtt að ekki sé staðið í skilum við hann. Ábyrgð sjóðfélaga er rík um að gera sjóðnum viðvart svo hægt sé að sannreyna skilin og grípa til nauðsynlegra aðgerða. Að öðrum kosti geta réttindi glatast sé sjóðnum ekki gert aðvart um möguleg vanskil. Sjóðurinn leggur sig fram við að fylgjast með skilum eftir bestu getu en stundum hefur hann ekki þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru s.s. skilagreinar eða launaseðla.

Þessu til viðbótar hefur sjóðurinn sérstakt innheimtuhlutverk í samræmi við 6.gr. l.129/1997. Árlega eru keyrðar saman skattalýsingar um laun og reiknað endurgjald sem eru svo borin saman við iðgjaldaskil til allra lífeyrissjóða. Þetta eftirlitshlutverk hefur Ríkiskattstjóri. Hafi þá ekki verið greitt í lífeyrissjóð eru vangreidd iðgjöld send til lífeyrissjóða og þá einkum Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda til innheimtu.
 

Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is

Admin Login LS Veflausnir Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright (c) 2012 Söfnunarsjóður Lífeyrisréttinda