07. desember 2021

Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Í byrjun nóvember sl. voru send út yfirlit til sjóðfélaga og eiga þau að hafa borist sjóðfélögum sjóðsins.  Yfirlitin miðast við iðgjöld fyrir tímabilið mars 2021 til og með september 2021 bæði í samtryggingu og séreign.  Á yfirlitinu koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og réttindi viðkomandi til lífeyris frá sjóðnum.

Mikilvægt er fyrir hvern og einn sjóðfélaga að yfirfara sitt yfirlit, ekki síst með það í huga að skoða vandlega hvort iðgjöld hafi skilað sér til sjóðsins, enda eru iðgjöldin grunnur að lífeyrisréttindum hvers og eins.

Berist sjóðfélaga ekki yfirlit ber honum innan 60 daga að hafa samband við sjóðinn annað hvort með því að hringja í síma 510-7400 eða senda tölvupóst á sl@sl.is.