28. desember 2021

Lokað fyrir heimsóknir á starfsstöð SL lífeyrissjóðs

Lokað verður fyrir allar heimsóknir á skrifstofu SL lífeyrissjóðs frá og með þriðjudeginum 28. desember 2021 en starfsmenn munu áfram sinna verkefnum sínum og þjónustu við sjóðfélaga eftir bestu getu.  Lokunin stendur yfir um óákveðinn tíma.  Á meðan á þessari lokun stendur þá hvetur sjóðurinn sína sjóðfélaga og viðskiptavini til þess að nýta sér rafræna þjónustu og/eða leita upplýsinga gegnum síma.  Hægt er að nýta sér upplýsingar á heimasíðu sjóðsins.  Þar er einnig hægt með rafrænu auðkenni að fá upplýsingar um réttindi, stöðu lána, lífeyrisgreiðslur o.fl.  Jafnframt er hægt að sækja um lífeyri, lán og aðra þjónustu er sjóðurinn býður upp á.  Minnt er á að undir þjónustuvefir er vefur fyrir launagreiðendur.

Hægt er að hafa samband við með tölvupósti sl@sl.is eða síma 5107400.  Síminn er opinn á milli 9:00 og 16:00 alla virka daga, nema föstudaga en þá er símatími á milli 9:00 og 14:45.