Verktakar og greiðslur til lífeyrissjóðs

Leiðbeiningar um greiðslur til lífeyrissjóðs

Launagreiðendur bera ábyrgð á því að skila iðgjöldum í lífeyrissjóð af öllum skattskyldum tekjum sem aflað er á Íslandi. Ef þú ert verktaki eða sjálfstætt starfandi einstaklingur, hvort sem er á þinni persónulegu kennitölu eða kennitölu fyrirtækis, ert þú þinn eigin launagreiðandi og þarft sem slíkur að standa skil á þínum eigin iðgjöldum. Þetta á við um alla vinnandi einstaklinga frá sextán ára aldri til sjötugs.

Leiðbeiningar fyrir verktaka á eigin kennitölu

Ef þú ert að vinna sem verktaki á eigin kennitölu og ert ekki með þitt eigið launakerfi, þá notarðu launagreiðendavefinn okkar til þess að skila inn nauðsynlegum upplýsingum um iðgjaldaskil til sjóðsins. Upplýsingarnar eru sendar inn til sjóðsins í formi skilagreinar.

  • Til þess að senda okkur skilagrein þarftu að skrá þig inn á launagreiðendavef sjóðsins (undir flipanum Þjónustuvefir) með rafrænum skilríkjum.  Ef upphæðin er svipuð flesta mánuði geturðu skráð nokkra mánuði fram í tímann. Þannig nærðu að greiða reglulega og koma í veg fyrir dráttarvexti.
  • Ef fjárhæð tekna er breytileg milli mánaða er best að skrá tekjurnar mánaðarlega þegar upphæð þeirra liggur fyrir. Skilagreinar þarf að senda inn fyrir 10. dag næsta mánaðar á eftir, en greiðsla þarf síðan að berast fyrir lok mánaðarins til þess að forðast megi dráttarvexti.
  • Eftir innskráningu á launagreiðendavefinn ferðu í Skilagreinar – Skrá nýja skilagrein rafrænt og velur tímabilið sem um ræðir.
  • Farðu svo í Skrá nýja skilagrein og smelltu á Áfram.
  • Skráðu þína kennitölu sem launþega og heildarupphæð launa á tímabilinu. Kerfið reiknar þá fjárhæð iðgjalds, mótframlags og framlags í endurhæfnigarsjóð. Síðan smellir þú á Skrá launþega, hakar í Fá sendar kröfur í netbanka ef þú vilt það og velur svo Staðfesta skilagrein.
  • Þá kemur upp yfirlitssíða sem rétt er að fara vel yfir. Ef upphæðir og tímabil eru rétt er smellt á Senda skilagrein. Skilagreinin berst þá til okkar og krafa myndast í netbankanum í kjölfarið.

Leiðbeiningar fyrir sjálfstætt starfandi í gegnum fyrirtækjakennitölu

Þeir aðilar sem eru með fyrirtækjakennitölu þurfa að sækja fyrst um veflykil á upphafssíðu launagreiðendavefs með því að smella á Sækja um veflykil. Þaðan þarftu að skrá þig inn á launagreiðendavefinn með kennitölu fyrirtækis og veflykli.

Eftir að innskráningu á launagreiðendavefinn er lokið eru skrefin þau sömu og hér að ofan.

Verktakar og lífeyrissjóður - Spurt og svarað

Ef þú ert verktaki með óregluleg eða mismunandi laun fyrir verktöku hvern mánuð er best að skrá eina skilagrein fyrir hvern mánuð þannig að iðgjöld til lífeyrissjóðs komi til greiðslu með reglubundnari hætti. Annars yrði allt árið reiknað saman og ein samtala fyrir iðgjald kæmi til greiðslu eftir að RSK hefur lokið yfirferð fyrir árið.

Já, hægt er að skrá marga mánuði aftur í tímann en þó ekki nema aftur að því tímabili sem komið hefur til innheimtu í gegnum RSK (yfirleitt um mánaðamótin september/október). Til að mynda er hægt er að skrá iðgjöld vegna síðasta árs þangað til RSK innheimta vegna þess árs hefst (mánaðamótin sept./okt. á nýju ári). Ef tekjur eru svipaðar alla mánuði ársins er hægt að skrá eina skilagrein fyrir allt tímabilið en þá skiptir kerfið skilagreininni jafnt upp í tólf kröfur, eina fyrir hvern mánuð, sem fá misháa dráttarvexti eftir því hvenær þær gjaldféllu. Ef upphæðir eru misjafnar í hverjum mánuði borgar sig að skrá eina skilagrein fyrir hvern mánuð þannig að dráttarvaxtaútreikningar verði réttir.

Með því að senda skilagrein inn fyrir 10. dag næsta mánaðar og greiða iðgjöldin fyrir lok þess mánaðar (Dæmi: Senda þarf inn skilagrein vegna tekna í janúarmánuði fyrir 10. febrúar, eindagi kröfunnar verður þá 28. febrúar).

Allir vinnandi einstaklingar frá 16 ára aldri ber að greiða skylduiðgjald í lífeyrissjóð. Fyrsta greiðsla fer fram mánuði eftir að 16 ára aldri er náð.

Nei, lögum samkvæmt greiða einstaklingar eftir sjötugt ekki skyldugjald til lífeyrissjóðs. Síðasta greiðslan væri vegna afmælismánaðar.