Afar góð afkoma árið 2020
Afkoma og staða sjóðsins í árslok 2020 er mjög góð. Ávöxtun síðasta árs er góð og batnar tryggingafræðileg staða talsvert. Er afkoma síðasta árs með þeim bestu í sögu sjóðsins. Samtals eru eignir allra deilda 208,4 milljarðar króna í árslok 2020 og vaxa um 13,1% eða 24,2 milljarða króna. Nafnávöxtun samtryggingardeildar er 13,5% og er raunávöxtun 9,7%. Nánar um uppgjör sjóðsins er hér. Ársskýrsla síðasta ár verður aðgengileg innan tíðar á heimasíðu sjóðsins.