25. september 2026

Kynningarfundur 8. október 2026 - vegna sameiningar SL lífeyrissjóðs og Almenna-Lífsverks

Aukaársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda (SL lífeyrissjóðs) verður haldinn á Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, 8. október 2026 kl. 17:15.

Á fundinum verður fyrirhuguð sameining SL lífeyrissjóðs og Almenna-Lífsverks lífeyrissjóðs kynnt, ásamt áhrifum hennar á sjóðfélaga SL og breytingum á samþykktum sjóðsins.

Dagskrá

  1. Kynning á sameiningunni og áhrifum hennar á sjóðfélaga SL.
  2. Kynning tryggingastærðfræðings SL á tryggingafræðilegum áhrifum sameiningarinnar.
  3. Kynning á samþykktabreytingum SL vegna sameiningarinnar.
  4. Önnur mál.

Á stjórnarfundi SL lífeyrissjóðs þann 29. 09.2026 voru þessar tillögur að samþykktabreytingum samþykktar.

Samþykktabreytingar SL - samþykktar 29.09.2026.pdf

Samþykktir SL - með breytingum sjáanlegum - 29.9.2026.pdf

Streymt verður frá fundinum á vef SL lífeyrissjóðs.

Upplýsingar um sameininguna

Á sameiginlegum upplýsingavef SL og Almenna – Lífsverks geta sjóðfélagar kynnt sér sameininguna og áhrif hennar á réttindi sín.

Stjórn SL lífeyrissjóðs

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir