27. mars 2026

Birting sjóðfélagayfirlita

Rafræn yfirlit sjóðfélaga hafa verið birt á Ísland.is og á sjóðfélagavef SL undir skjöl.

Yfirlitin miðast við iðgjöld fyrir tímabilið október 2025 til og með mars 2026 bæði í samtryggingu og séreign. Á yfirlitunum koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og réttindi viðkomandi til lífeyris frá sjóðnum.

Mikilvægt er fyrir sjóðfélaga að bera yfirlitin saman við launaseðla sína og skoða hvort öll iðgjöld hafi skilað sér til sjóðsins, enda eru iðgjöldin grunnur að lífeyrisréttindum hvers og eins. Hafi iðgjöld ekki skilað sér er mikilvægt hafa samband við viðkomandi vinnuveitanda og/eða innheimtudeild sjóðsins og leita skýringa. Berist sjóðnum ekki athugasemdir innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins er hætt við því að óinnheimt iðgjald njóti ekki ábyrgðar Ábyrgðarsjóðs launa.