02. mars 2011

Samkomulag um aðlögun skulda í 110 % af verðmæti fasteigna

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda er aðili að samkomulagi stjórnvalda, fjármálafyrirtækja, Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða um aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila. Samkomulagið felur í sér að sjóðfélögum sem eru með veðskuldir hjá sjóðnum umfram 110 % af verðmæti fasteignar býðst að færa veðskuldirnar niður að 110 % af verðmæti eigna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Helstu efnisatriði samkomulagsins eru eftirfarandi:

  • Heimilum þar sem ákvílandi veðskuldir eru umfram 110 % af verðmæti fasteignar, býðst að færa veðskuldir sínar niður að 110% af verðmæti eignar. Skilyrði fyrir niðurfellingu skulda er að umsækjandi og /eða maki séu eigendur hinna veðsettu eigna, greiðendur ákvílandi lána og að eignin sé notuð til heimilishalds umsækjanda.
  • Heimilt er að sækja um niðurfellingu allt að 4 m.kr fyrir einstaklinga og 7 m.kr. fyrir einstæða foreldra, sambýlisfólk og hjón. Ofangreind lækkun skulda miðast við að greiðslubyrgði lántaka af lánum sem samkomulag þetta tekur til sé ekki lægri en sem svarar 18-20% af tekjum.
  • Hægt er að óska eftir frekari niðurfellingu skulda umfram 110% af verðmæti fasteignar og getur niðurfærslan numið allt að 15 m.kr fyrir einstakling og 30 m.kr. fyrir einstæða foreldra, sambýlisfólk og hjón. Lækkun skuldar takmarkast við 18-20% af tekjum.
  • Skuldir sem færa má niður samkvæmt samkomulagin eru skuldir sem stofnað var til vegna fasteignakaupa umsækjanda á árunum fyrir 2009 og hvíla með veði á eign sem er til heimilishalds lántakanda og uppfylla rétt til vaxtabóta.
  • Lántaki skal almennt snúa sér til þess kröfuhafa íbúðarláns sem er á aftasta veðrétti. Sá kröfuhafi sem lántaki leitar til, heldur utan um málið gagnvart öðrum kröfuhöfum.
  • Sækja þarf um niðurfellingu fyrir 1. júlí 2011.
  • Samkomulagið er hægt að lesa í heild sinni hér.
  • Umsókn um 110% aðlögun skulda má finna hér.

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir
Mynd með frétt
22.apr. 2024

Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Þann 15. apríl sl. voru yfirlit sjóðfélaga birt á Ísland.is og á sjóðfélagavef SL sem má finnu undir þjónustuvefir.
Lesa meira
Sjá allar fréttir