21. desember 2022

Breytingar á samþykktum

SL lífeyrissjóður vill vekja athygli á því að frá komandi áramótum taka gildi samþykktarbreytingar sem snerta greiðandi sjóðfélaga og lífeyrisþega.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið staðfesti breytingarnar þann 15. desember s.l. Unnið er innan sjóðsins að innleiðingu þeirra. Snúa breytingarnar að nokkrum þáttum. Eru þær helstar:

  • Hægt að hefja töku eftirlauna frá 60 ára aldri í stað 65 ára áður.
  • Hækkun lífeyrisgreiðslna um 5,6% frá áramótum.
  • Aðlögum réttinda að breyttum eftirlifanditöflum en nú er horft til framtíðar í stað sögulegra gagna um dánarlíkur.
  • Upptaka á nýrri réttindatöflu sem reiknar út framtíðarréttindi.

Jafnframt er vakin athygli á því að sökum upptöku nýrra eftirlifanditaflna má búast við tíðari endurútreikningi á réttindatöflu sjóðsins.

Hægt er að kynna sér samþykktirnar hér.

 


Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir
Mynd með frétt
22.apr. 2024

Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Þann 15. apríl sl. voru yfirlit sjóðfélaga birt á Ísland.is og á sjóðfélagavef SL sem má finnu undir þjónustuvefir.
Lesa meira
Sjá allar fréttir