02. júní 2023
Útsending yfirlita til sjóðfélaga
Um miðjan maí voru send út yfirlit til sjóðfélaga og eiga þau nú að hafa borist sjóðfélögum sjóðsins. Yfirlitin miðast við iðgjöld fyrir tímabilið október 2022 til og með mars 2023 bæði í samtryggingu og séreign. Á yfirlitinu koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og réttindi viðkomandi til lífeyris frá sjóðnum.
Mikilvægt er fyrir hvern og einn sjóðfélaga að yfirfara sitt yfirlit, ekki síst með það í huga að skoða vandlega hvort iðgjöld hafi skilað sér til sjóðsins, enda eru iðgjöldin grunnur að lífeyrisréttindum hvers og eins.
Berist sjóðfélaga ekki yfirlit ber honum innan 60 daga að hafa samband við sjóðinn annað hvort með því að hringja í síma 510-7400 eða senda tölvupóst á sl@sl.is.

Fleiri fréttir
Sjá allar fréttir

21.sep. 2023
Hækkun vaxta sjóðfélagalána
Á fundi stjórnar SL lífeyrissjóðs þann 19. september sl. var ákveðið að hækka vexti sjóðfélagalána.
Lesa meira20.sep. 2023
SL lífeyrissjóður í betri stöðu en talið var
25.maí 2023