17. september 2024
Vextir sjóðfélagalána
Á fundi stjórnar SL lífeyrissjóðs þann 17. september 2024 var ákveðið að breyta vöxtum sjóðfélagalána. Verðtryggðir fastir vextir verða 4,15% og tekur breytingin eingöngu til nýrra lána sem veitt eru frá og með 18.09.2024. Breytilegir verðtryggðir vextir sjóðfélagalána verða 3,75%. Tekur breytingin gildi þann 1. nóvember nk. og hefur áhrif á áður veitt lán með breytilegum vöxtum sem og ný lán. Óverðtryggðir vextir eru óbreyttir eða 9,50%.
Nánari upplýsingar um vexti sjóðfélagalána eru á heimasíðu sjóðsins undir lán og svo flipi er heitir vaxtatafla sjóðsins. Ef sjóðfélagar vilja frekari upplýsingar þá er velkomið að hafa samband við sjóðinn annað hvort í gegnum netfangið sl@sl.is eða í síma 510-7400.

Fleiri fréttir
Sjá allar fréttir

20.jan. 2026
Tekjuathugun örorkulífeyrisþega – víxlverkunarákvæði framlengt
SL mun nú í janúar 2026 endurtaka tekjuathugun nóvember 2025 vegna útreiknings örorkulífeyris fyrir desember 2025.
Lesa meira19.nóv. 2025