Nýr framkvæmdastjóri og nýr sviðsstjóri áhættustýringarsviðs
Guðmundur Stefán Steindórsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra SL lífeyrissjóðs en hann tekur við keflinu af Sigurbirni Sigurbjörnssyni sem ákvað að láta af störfum eftir tæplega 40 ára starf hjá sjóðnum. Guðmundur hefur starfað hjá SL lífeyrissjóði síðan 2016 sem sviðsstjóri áhættustýringar og hefur komið að fjölbreyttum verkefnum innan sjóðsins. Guðmundur er verkfræðingur frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU) og hafði víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði áður en hann hóf störf fyrir SL lífeyrissjóð.
Þá hefur Ragnar Leví Guðmundarson verið ráðinn sem sviðsstjóri áhættustýringar SL lífeyrissjóðs. Ragnar lærði tryggingastærðfræði og er með fjölbreytta reynslu úr fjármála- og tryggingageiranum. Hann starfaði áður hjá VÍS þar sem hann sinnti útreikningum á vátryggingaskuld og áhættugreiningu. Auk þess hefur hann unnið að tryggingafræðilegum útreikningum fyrir Lífeyrissjóð verslunarmanna.
Menntun Ragnars spannar BS gráðu í hagnýtri stærðfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í tryggingastærðfræði frá Lisbon School of Economics and Management. Hann er einnig að ljúka doktorsnámi í tryggingastærðfræði við Heriot-Watt háskólann í Skotlandi, þar sem hann rannsakar meðal annars notkun vélræns náms í áhættustýringu og eignastýringu.
Ragnar hefur birt vísindagreinar í ritrýndum tímaritum, þar á meðal um áhrif ESG-skimunar á fjölbreytni fjárfestingasafna.
„Það er mér mikill heiður að taka við sem framkvæmdastjóri SL lífeyrissjóðs eftir níu ára starf innan hans. Ég tek við öflugu búi og er fullur tilhlökkunar að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið í þágu sjóðfélaga okkar. Þá vil ég bjóða Ragnar Leví hjartanlega velkominn til liðs við okkur en reynsla hans og þekking mun styrkja teymið og starfsemi sjóðsins,“ segir Guðmundur Stefán Steindórsson, framkvæmdastjóri SL lífeyrissjóðs.
Stjórn SL lífeyrissjóðs þakkar fráfarandi framkvæmdastjóra, Sigurbirni Sigurbjörnssyni kærlega fyrir hans störf fyrir SL lífeyrissjóð og sjóðfélaga hans. Sjóðurinn hefur vaxið og dafnað undir stjórn Sigurbjörns og eignir margfaldast, en sjóðurinn hefur skilað ávöxtun sem er með því besta sem gerist hjá íslenskum lífeyrissjóðum.
Ragnar Leví Guðmundarson sviðsstjóri áhættustýringar SL

Fleiri fréttir
