Birting sjóðfélagayfirlita
Rafræn yfirlit sjóðfélaga SL hafa verið birt á Ísland.is og á sjóðfélagavef SL undir skjöl. Yfirlitin fara til allra virkra sjóðfélaga sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu frá apríl 2025 til og með október 2025.
Í yfirlitinu koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og um réttindi hans til lífeyris frá sjóðnum. Einnig koma fram upplýsingar um tilgreinda séreign og um séreignarsparnað hjá sjóðnum.
Mikilvægt er fyrir sjóðfélaga að bera yfirlitin saman við launaseðla sína og skoða hvort öll iðgjöld hafi skilað sér til sjóðsins, enda eru iðgjöldin grunnur að lífeyrisréttindum hvers og eins. Hafi iðgjöld ekki skilað sér er mikilvægt hafa samband við viðkomandi vinnuveitanda og/eða innheimtudeild sjóðsins og leita skýringa. Berist sjóðnum ekki athugasemdir innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins er hætt við því að óinnheimt iðgjald njóti ekki ábyrgðar Ábyrgðarsjóðs launa.

Fleiri fréttir
