Ef lán sem tekið var hjá sjóðnum á síðasta ári sjást ekki á skattframtali þá þarf að fara í ,,sundurliðunarblað“, merkja viðeigandi lán og færa þau þaðan yfir á framtalið.
SL mun nú í janúar 2026 endurtaka tekjuathugun nóvember 2025 vegna útreiknings örorkulífeyris fyrir desember 2025.
Í kjölfar Kveiksþáttar síðastliðinnar viku þar sem umfjöllunarefnið var sala erlendra lífeyristrygginga vill SL lífeyrissjóður árétta að sjóðfélagar okkar greiða hvorki sölu- eða upphafskostnað til SL né heldur uppsagnar- eða flutningskostnað.
SL ber nú að taka fullt tillit til greiðslna frá Tryggingastofnun (TR) þegar örorkulífeyrir frá sjóðnum er reiknaður frá september 2025.
Rafræn yfirlit sjóðfélaga SL hafa verið birt á Ísland.is og á sjóðfélagavef SL undir skjöl. Yfirlitin fara til allra virkra sjóðfélaga sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu frá apríl 2025 til og með október 2025.
SL lífeyrissjóður metur þessa dagana áhrif dóms Hæstaréttar í máli nr. 55/2024, þar sem fjallað var um skilmála lána Íslandsbanka, en ljóst er að sú vinna mun taka nokkurn tíma.
SL lífeyrissjóður skilar sterkum árangri á yfirstandandi ári með yfir 8% ávöxtun á samtryggingu og stöðugri aukningu í iðgjöldum. Sjóðurinn leggur áherslu á sjálfbæra fjárfestingarstefnu og bætt þjónustuframboð til félagsmanna. Með fjölbreyttum fjárfestingum og ábyrgri áhættustýringu hefur sjóðurinn tryggt traustan grunn til framtíðar og eflir þannig bæði ávöxtun og öryggi fyrir sjóðfélaga sína.
Þann 2. október hófst innheimta vangreiddra iðgjalda vegna launatekna og reiknaðs endurgjalds ársins 2024. Krafan er vegna ógreiddra iðgjalda tekjuársins 2024. Krafan verður til við skattaeftirlit hjá Ríkisskattstjóra en hann samkeyrir álagningarskrána við skrár frá lífeyrissjóðum landsins.
Guðmundur Stefán Steindórsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra SL lífeyrissjóðs en hann tekur við keflinu af Sigurbirni Sigurbjörnssyni sem ákvað að láta af störfum eftir tæplega 40 ára starf hjá sjóðnum.
Ársfundur SL lífeyrissjóðs verður föstudaginn 11. apríl 2025 kl. 16:00 á Hilton Nordica Reykjavík, Suðurlandsbraut 2. Sjóðsfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Í gær, 18. mars 2025, staðfesti stjórn SL lífeyrissjóðs ársreikning fyrir árið 2024. Heildareignir í árslok 2024 námu samtals 292,2 milljörðum og var ávöxtun ársins góð.
Á fundi stjórnar SL lífeyrissjóðs þann 7. febrúar 2025 var ákveðið að lækka óverðtryggða vexti sjóðfélagalána. Lækka þeir um 0,5% og verða 8,5% frá og með 15.02.2025.